18. Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum
Manage episode 316513214 series 1744712
Viðmælandi þáttarins er Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela. Íslandshótel rekur 17 hótel með yfir 1.700 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Kolbrún tók við starfinu árið 2016 en þekkti vel til fyrirtækisins enda setið í stjórn hótelsins áður. Kolbrún er fædd árið 1962 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í MH og kláraði svo Cand Ocean gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og lauk síðar Excecutive Education frá Kenan-Flagler Business School og síðan löggildingu í verðbréfamiðlun. Kolbrún hefur m.a. starfað sem fjármálastjóri Húsasmiðjunnar, útibússtjóri og forstöðumaður bakvinnslu í Íslandsbanka, framkvæmdastjóri hjá VÍS og sem framkvæmdastjóri Kjölfestu, framtakssjóðs. Kolbrún hefur setið í hinum ýmsu stjórnum fyrirtækja t.d. eins og hjá Íslandsbanka, Fastus, Húsasmiðjunni, Senu og verið formaður endurskoðunarnefndar hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum.
Þátturinn er kostaður af VÍS og Kaffitár.
72 odcinków